Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur ákveðið að halda kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins áfram. Í tilkynningu frá SGS segir að viðræðurnar hafi gengið þokkalega en að staðan sé viðkvæm og margt enn óleyst, auk þess sem þolinmæði sambandsins sé ekki endalaus.
Viðræðunum verður haldið áfram eftir helgi. Í tilkynningunni kemur fram að aðilar hafi fundað nánast daglega undanfarnar vikur, auk þess sem vinna starfshópa um einstök málefni hafi verið í fullum gangi.
Tilkynningin í heild sinni:
„Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur samþykkt að halda viðræðum áfram við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning og verður viðræðum haldið áfram eftir helgi. Aðilar hafa fundað nánast daglega undanfarnar vikur, auk þess sem vinna starfshópa um einstök málefni hefur verið í fullum gangi. Viðræðurnar hafa gengið þokkalega en staðan er viðkvæm og margt er enn óleyst.
Þolinmæði Starfsgreinasambandsins í þessum kjaraviðræðum er ekki endalaus og það er ljóst að næsta vika getur ráðið úrslitum upp á framhaldið.“