Staðan til sjávar

Sjávarútvegur hefur lengi verið samofin íslenskri efnahagsþróun. Greiningardeild Arion banka sendi út í dag stutta samantekt um íslenskan sjávarútveg,

Með minna vægi er hagkerfið í heild ekki eins berskjaldað og áður fyrir sveiflum í sjávarútvegi. Sjávarútvegurinn er þó enn mikilvægur og auknar aflaheimildir í uppsjávarfiski gætu bætt ríflega hálfri prósentu við hagvöxt.

Líklega er 2017 betra ár í helstu tegundum uppsjávarfisks sem gæti aukið útflutningsverðmæti hans um allt að 40%.

Helstu botnfisktegundir standa vel um þessar mundir. Stofnvísitala þorsk hefur aldrei mælst hærri frá árinu 1985 og hefur meira en tvöfaldast frá 2010. Botn- flat- og skelfisksala jókst um 5% eða tæp 25 þúsund tonn árið 2016.

Miðað við góða stöðu þorskstofnsins og annar stofna gæti sá afli aukist árið 2017. Verð sjávarafurða í erlendri mynt er almennt séð nokkuð hátt um þessar mundir.

Hækkun undanfarin ár er að nokkru leiti knúin áfram af verði á fiskimjöli og lýsi - en gengi króunnnar vegur hressilega á móti. Gengi krónunnar er nú 24,6% sterkari nú en að jafnaði árið 2015. Þá er miðað við sjávarútvegsvegna gengisvísitölu.

Útflutningur sjávarafurða mun áfram dragast saman í krónum talið í ár sökum sterkrar krónu. Aukinn uppsjávarkvóti og þorskkvóti  - auk góðs ástands þorskstofnsins - vegur á móti gengisstyrkingu í ár.

Sterk króna mun að líkindum leiða til lakari afkomu en síðustu tuttugu ár.

Rekstarhagnaður í sjávarútvegi er mjög háður gengi. Það er þó misjafnt eftir útgerðum og vinnslu. Lækkun erlendra skulda ásamt lágum erlendum vöxtum og lágu verði olíu vega á móti að einhverju leiti.

Afkoma vinnslu á saltfiski og ferskum fiski hefur verið lökust svo gengisstrykingin bítur mest þar. Miðað við dreifingu afkomu árið 2015 verður afkoma langflestra sjávarútvegsfyrirtækja neikvæð í ár. Þau stóru spjara sig.

Verði krónan lengi sterk gæti það leitt til nokkurrar uppstokkunar í greininni. Efnahagur sjávarútvegsins í heild er traustur sem eykur getu til að takast á við breyttar aðstæður.

Tæpur fjórðungur sjávarútvegsfyrirtækja var með neikvætt eigið fé árið 2015. Sum þeirra fyrirtækja geta orðið undir.

Matvælastofnun hinna Sameinuðu þjóða (FAO) reiknar með verðlækkun sjávarafurða á næstu árum sem síðar gengur til baka.

Neysla mun aukast og nær öll aukningin verður í þróunarríkjunum.

 

rtá

Nánar www.arionbanki.is