Staða þjóðarbúsins

Greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins á fyrsta ársfjórðungi 2017 er hagstæð. Viðskiptajöfnuður mælist hagstæður um 11,1, milljarða króna samanborið við 44,6 milljarða fjórðunginn á undan.

Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 35,1 milljarð króna en þjónustujöfnuður hagstæður um 43,1 milljarða króna. Jöfnuður frumþáttatekna var hagstæður um 8,7, milljarða króna. en rekstrarframlög óhagstæð um 5,5, milljarða króna. 

Erlendar eignir þjóðarbúsins eru 3.909 milljarða króna en skuldir eru 3.817 milljarðar króna. Hrein staða við útlönd er því jákvæð um 91 milljarð króna.

Skuldir lækkuðu um 74 milljarða króna. Gengi krónunnar og verðbreytingar höfðu jákvæð áhrif á erlenda stöðu þjóðabúsins.

rtá

Nánar www.sedlabanki.is