Fjölmiðlamaðurinn Gunnar Smári Egilsson ber saman stöðu svartra í Bandaríkjunum og múslima í Frakklandi í gærkvöld og birtir afraksturinn á fésbók sinni, en þar kemur fram að staða þessara minnihlutahópa í vestrænum heimi er um margt lík.
\"...við erum vön að meta veika stöðu svartra í Bandaríkjunum út frá aldalangri kerfisbundinni mismunun en erum síðan hvött til þess af umræðunni að meta stöðu múslima í Evrópu út frá eðliskenningum,\" skrifar Gunnar Smári og bætir við: \"Veik félagsstaða þeirra á að vera þeim sjálfum að kenna; lífsviðhorfum þeirra eða trú. Ef einhver hefur áhuga á að velta þessa fyrir sér í dag eru hér nokkra staðreyndir (tölurnar eru ekki alltaf sambærilegar milli landanna en ætíð sambærilegar milli hópa innan landanna):
• Svartir eru 13% af bandarísku þjóðinni en 40% af föngunum
• Múslimar eru 9% af frönsku þjóðinni en 70% af föngunum
• 29% Bandaríkjamanna er með háskólapróf en 19% svartra
• 23% af Frökkum er með háskólapróf en 15% af múslimum
• 12% Bandaríkjamanna eru með grunnskólapróf eða minni menntun en 15% svartra
• 22% af Frökkum er með grunnskólapróf eða minni menntun en 45% af múslimum
• Atvinnuleysi er 5% í Bandaríkjunum en 9% meðal svartra
• Atvinnuleysi í Frakklandi er 9% en 17% meðal innflytjenda
• Atvinnuleysi meðal háskólamenntaðra er 2% í Bandaríkjunum en 5% meðal svartra með háskólapróf
• Atvinnuleysi meðal háskólamenntaðra er 5% í Frakklandi en 26% meðal háskólafólks af Norður-Afríkönskum uppruna.\"