Staða sigmundar davíðs er afleit

Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, segir stöðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar vera slæma. Hann hafi spilað illa úr erfiðri stöðu. Stefanía bendir á að fylgi Framsóknarflokksins hafi tekið að mælast illa löngu áður en Wintris-málið kom upp.

Stefaníu sýnist margir að þeim þingmönnum sem skiluðu sér á þing í fylgissveiflu Framsóknar árið 2013 kjósi að hætta nú frekar en falla í kosningum. Sama segir hún um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Illuga Gunnarsson.

Viðtal við Stefaníu er á dagskrá Þjóðbrautar klukkan 21:45 í kvöld.