Staða öryggisstjóra hjá HB Granda hefur verið lögð niður. Staðan búin til fyrir tveimur árum til að auka öryggismál fyrirtækisins. Snæfríður Einarsdóttir gegndi stöðunni en hún lét af störfum í september síðastliðnum. Flest stærstu sjávarútvegsfyrirtækin í landinu eru með öryggisstjóra innan sinna raða. Þetta stendur í frétt Fiskifrétta sem lesa má hér.
Öryggisstjórar er starfandi hjá flestu stóru sjávarútvegsfyrirtækjunum í fullu starfi eða meðfram öðrum störfum, þ.e.a.s. auk HB Granda, Brim, Vísi, FISK Seafood, Samherja, Síldarvinnslunni á Neskaupstað, Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði, Ísfélaginu og Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, eins og segir í fréttinni.
Ný tækni hefur kallað á starf öryggisstjóra og er vitnað í orð Hilmars Snorrasonar, skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna um að innan fárra ára yrði slysalaust um borð í skipum.
Í samtali við Fiskifréttir segir Snæfríður að niðurlanging starfsins komi sér ekki á óvart. Orðrétt segir hún við Fiskifréttir: „Það eru komnir nýir eigendur og önnur nálgun og þú verður að ræða það við þá hvort ekki sé lengur ástæða til þess að leggja áherslu á öryggismál. Heilt yfir eru breyttar áherslur og nýir stjórnendur eflaust enn að móta sína stefnu. Ég myndi þó alls ekki segja að allt mitt starf hafi verið unnið fyrir gýg. Nú er það bara hlutverk þeirra sem eftir eru að halda því starfi áfram. En það var ekki ráðinn annar öryggisstjóri. Staðan var lögð niður. Ég hef enga trú á því að málaflokknum verði ekki sinnt heldur verði honum sinnt á annan hátt,“ segir Snæfríður við blaðið.