Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls og formaður samtaka fyrirtækja í áliðnaði, Samáls, telur samkeppnisstöðu íslenskrar álframleiðslu á heimsmarkaði afar sterka, þrátt fyrir stóraukna fyrirferð Kínverja í þessari grein.
Ragnar, sem var gestur Páls Magússonar á Þjóðbraut í vikunni telur að líta beri á framtíðarhagnað Landsvirkjunar sem auðlindarentu - og að allar tekjur samfélagsins af nýtingu auðlindarinnar séu því sambærilegar við veiðileyfagjald í sjávarútvegi.
Mjög hefur verið um það rætt í í álframleiðslunni á síðustu misserum að Kínverjar séu að taka yfir markaðinn með helmings eða jafnvel meiri markaðshlutdeild í greininni, en Ragnar telur að það ógni ekki framtíð áliðnðar á Íslandi. Hér á landi séu álfyrirtækin afar framsækin, tæknivædd og vel með á nótunum og séu þar að auki mjög nálægt markaðanum, ólíkt Kínverjum sem þurfi að flytja afurð sína um mun lengri veg en íslensk álfyrirtæki - og það skipti mjklu máli í þessum viðskipum.
Þáttinn og klippur úr þættinum er hægt að horfa á hér: