Ritstjórarnir þrír sem voru gestir Sigmundar Ernis í samnefndum þætti á Hringbraut í gærkvöld voru sammála um að staða Illuga Gunnarssonar vegna tengsla hans við Orku Energy væri verri en hann sjálfur hefði hugmynd um. Málið minnti um margt á lekamálið sem varð Hönnu Birnu Kristjánsdóttur að falli sem innanríkisráðherra; reynt væri að handvelja og stýra upplýsingum til fjölmiðla án árangurs.
Ritstjórarnir er nýr vikulegur þáttur á Hringbraut þar sem valdir stjórnendur litlu fjölmiðlanna á Íslandi mæta í myndverið til að greina og rýna fréttamálin sem eru efst á baugi hverju sinni og einnig til að meta framgöngu helstu persóna sem koma við sögu í fréttamálum líðandi stundar. Þátturinn er frumsýnddur klukkan 21.30 á þriðjudagskvöldum.
Gestirnir að þessu sinni voru Eggert Skúlason ritstjóri DV, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri Stundarinnar og Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans. Þeim síðastnefnda var tíðrætt um að engar reglur eða venjur væru til að um það hvenær ráðherrar stigu til hliðar vegna vantrausts í embætti. Eggert benti á að enda þótt ráðherrar í stöðu sem Illugi væri nú reyndu að koma fram með 99% af umbeðnum upplýsingum færi 99% af vinnu fjölmiðla í það að elta þetta eina prósent sem lægi óbætt hjá garði. Ingibjörg Dögg sagði það eina í stöðunni fyrir Illuga að leggja öll spilin á borðin, fremur en að hrekjast undan spurningum fjölmiðla. Allir voru ritstjórarnir sammála um að málið minnti mjög á flótta Hönnu Birnu undan fjölmiðlum í lekamálinu - og talandi um hana; viðmælendur voru eindregið á þeirri skoðun að afsökunartónninn í máli Hönnu Birnu í fyrsta viðtalinu eftir að hún steig aftur inn á Alþingi hefði ekki verið sannfærandi; ennþá kenndki hún öðrum um ófarir sínar fremur en að horfa í eigin barm - og engin samúð væri með raunverulegum fórnarlömbum málsins.
Sjá má þáttinn í heild sinni inni hér; Einnig getur þú skoðað klippur úr þættinum með því að smella hér: