Ritstjórarnir Eggert Skúlason, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Þórður Snær Júlíusson meta pólitíska stöðu sjálfstæðismannanna Illuga Gunnarssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í fyrsta þætti Ritstjóranna á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld. Þættinum er stjórnað af enn einum ritstjóranum, Sigmundii Erni Rúnarssyni.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra liggur nú mjög undir ámæli fyrir óeðlileg hagsmunatengsl sín við Orku Energy og annar ráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem raunar hefur sagt af sér eins og alþjóð veit, þykir ekki hafa viðurkennt mistök sín með nógu afgerandi hætti í fyrsta viðtalinu sem hún veitir eftir endurkomu á Alþingi.
Í þættinum er hækkun bankabónusa líka tekin fyrir, svo og hatursumræðan sem verið hefur áberandi í samfélaginu síðustu mánuði.
Þættirnir verða vikulega á dagskrá Hringbrautar - og verða gestir hans hverju sinni ritstjórar frá litlu fjölmiðlunum á Íslandi; DV, Fréttatímanum, Herðubreið, Kjarnanum, Nútímanum, Stundinni og Viðskiptablaðinu.