Ung kona spyr um uppeldi þingmanna

\"Þegar fullorðið fólk kemur saman til að ræða ýmis málefni myndi ég telja að gáfulegast væri að umræðan væri á málefnalegu stigi,\" skrifar Katrín kristjana Hjartardóttir, yngsti pistlahöfundur Hringbrautar og botnar ekki í háttalagi íslenskra þingmanna.

Hún telur það lágmark og raunar algjört skilyrði að halda aftur af svívirðingum þegar talið berst að jafn alvarlegum þætti og fjárlögum íslenska ríkisins, en því sé ekki að heilsa: \"... eldri þingmenn sýna nýjum þingmönnum hvar Davíð keypti ölið og hika ekki við að fara í manninn frekar en málstaðinn, að grípa fram í fyrir ræðumanni,\" skrifar Katrín Kristjana og segir endalaus frammíköll um allan þingsal vera orðinn sorglegan vana inn á Alþingi íslendinga.

\"Þetta er þvert á alla flokka og því miður geta fleiri frekar en færri tekið þetta til sín,\" skrifar konan unga og tekur dæmi: \"Ég vil taka formann fjárlaganefndar sem dæmi um vikuna sem leið. Þingmaður stjórnarandstöðunar er í pontu að gagnrýna formann nefndarinar og þingmenn meirihlutans fyrir að leita skjóls undir pilsfalds formannsins. Þegar þau orð falla telur formaður fjárlaganendar sig knúna að labba upp að þingmanni í miðri ræðu og lyfta upp pilsinu. Um mig fór álíka mikil skömm og þegar ég var fjórtán ára gömul og móðir mín sá sig skylduga að koma niður á skólalóð að draga mig heim fyrir framan hópinn því ég hafði svikist um heimavinnu dagsins.\"

Hún segir að varla sé hægt að finna betri líkingu því hegðun formanns fjárlaganefndar hafi ekkert verið síðri en hjá fjórtán ára gamalli unglingsstelpu: \"Eruð þið fólkið sem ég á að lýta upp til sem löggjafar landsins okkar,\" spyr Katrín Kristjana og kveðst skammast sín alltof oft fyrir þingmenn þjóðarinnar.

\"Fyrir mitt leyti var ég ekki alin upp við framíköll og að vanvirða ólíkar skoðanir,\" skrifar hún í lokin og spyr: \"...voruð þið það háttvirtir þingmenn?\"