Andrés Ingi Jónsson, fyrrum þingmaður Vinstri grænna, segir að finna megi misræmi í gjörðum og svo orðum ríkisstjórnarinnar þegar kemur að jafnréttismálum. Hann segir að þau hafi ekki verið höfð að leiðarljósi þegar kemur að aðgerðum stjórnvalda vegna kórónuveirufaraldursins.
Þetta kemur fram í fréttabréfi Andrésar sem Rúv greinir frá. Í því segir hann að ef ríkisstjórninni væri alvara með að hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi hefði hún þurft að gera það í umræddum aðgerðum við veirunni. Hann segir að sama dag og forsætisráðherra hafi sagt það skita máli að forða bakslagi í kynjajafnréttismálum hafi greinargerð frá fjármálaráðherra þar sem segir að ekki hafi unnist tími til að meta allar aðgerðir stjórnvalda út frá áhrifum á jafnrétti.
„Ef ríkisstjórninni væri alvara með að hafa kynjasjónarmið að leiðarljósi, þá hefði hún metið allar aðgerðir sínar út frá áhrifum á jafnrétti. Mat á áhrifum lagasetningar þarf alltaf að liggja fyrir, ekki bara þegar það hentar vel,“ segir Andrés og spyr hvort jafnrétti sé afgangsstærð hjá ríkisstjórninni.
Andrés sagði sig úr þingflokki Vinstri grænna fyrir um fimm mánuðum og starfar nú sem óháður þingmaður út kjörtímabilið.