Fá allir sjúklingar sömu þjónustu?

"Ég hef velt því fyrir mér hvort þjónusta við sjúklinga sé misjöfn eftir því hvaða sjúkdóma þeir greinast með," skrifar Ágúst Óskar Gústafsson í nýjasta pistli sínum um læknisfræði á hringbraut.is. Niðurstaða hans er sú að meðferðarúrræði séu misjafnlega aðgengileg fyrir fólk með ólíka sjúkdóma.


"Sumar heilsugæslustöðvar hafa tekið upp skipulagða þjónustu við þá sem greinast með sykursýki, svokallaða sykursýkismóttöku, þar sem markmiðið er að taka fljótt og vel á vandanum," skrifar Ágúst óskar sem dæmi um ágæta þjónustu fyrir þann vaxandi hóp sem þjáist af sykursýki. Hann bendir á að svipað meðferðarrúuæði sé nauðsynleg fyrir aðra algenga kvilla, svo sem depurð og þunglyndi: "Samkvæmt könnunum eru allt upp í einn af hverjum þremur sem koma á heilsugæsluna með erindi sem tengist depurð eða tilfinningavanda," segir hann en telur úrræði skorta.


Hann bendir á að sjúklingur sem greinist með sykursýki komist fljótlega í reglubundið eftirlit í sykursýkismóttöku. Á sérstöku skráningarblaði sé spurt út í ýmsa þætti og skimað sé fyrir fylgikvillum sjúkdómsins. Hjúkrunarfræðingur haldi utan um móttökuna og sjái um að bóka sjúklinginn í eftirlit. Áhersla sé lögð á reglubundið eftirlit og séð til þess að sjúklingur fari í skoðun hjá augnlækni, komi með þvagprufu, fari í viðeigandi blóðprufur og skrái blóðsykursmælingar í dagbók.


Hann bendir á að í Danmörku séu margar heilsugæslustöðvar með skipulagða móttöku fyrir sjúklinga með sykursýki, hjarta - og lungnasjúkdóma. Sjúklingar komi á um það bil þriggja mánaða fresti í eftirlit til hjúkrunarfræðings og fari í viðeigandi rannsóknir. Árlegt eftirlit sé síðan hjá lækni og oftar ef þörf krefji.


En af hverju fær fólk með depurð og þunglyndi ekki svona góða og altæka þjónustu, spyr læknirinn og segir afar brýnt að gera betur fyrir þennan hóp: "Skipulögð móttaka á heilsugæslu fyrir fólk sem á við þunglyndi, kvíða eða streitu að glíma gæti aukið lífsgæði þess. Hún myndi auka aðgengi sjúklinga að meðferðarúrræðum og koma að gagni í eftirfylgni, " skrifar læknirinn og segir ennfremur: "Þunglyndi, depurð, streita eða kvíði hrjáir fjölda manns og því fyrr sem brugðist er við er meiri von um bata. Heilsugæslan gæti lagt sitt lóð á vogarskálarnar með því að skipuleggja móttöku og meðferð fyrir þá sem leita aðstoðar læknis vegna þessara algengu kvilla. Með því bætum við þjónustu við sjúklinga og veitum rétta meðhöndlun - rétt eins og við öðrum sjúkdómum."