Páll Vilhjálmsson blaðamaður fer mikinn í bloggpistli þar sem hann gerir ýmis andlit Vilhjálms Þorsteinssonar fjárfestis að umfjöllunarefni.
Mótsagnir Vilhjálms eru slíkar að mati Páls að kalli á skrif.
\"Mynd af Vilhjálmi Þorsteinssyni berja tóma tunnu á Austurvelli til að mótmæla sitjandi ríkisstjórn vegna fjármálatengsla ráðherra við aflandseyjar er reglulega birt á samfélagsmiðlum. Vilhjálmur sagði af sér gjaldkerastöðu Samfylkingar í byrjun mánaðar, mætti galvaskur að mótmæla á Austurvelli um miðjan mánuðinn en segir af sér stjórnarsetu í Kjarnanum í lok mánaðarins. Hann átti sem sagt sjálfur eignir í Lúx og Tortólu en mótmælti engu að síður kröftuglega á Austurvelli,\" skrifar Páll.
\"Villi trymbill er skeggjuð útgáfa af manninum sem eyðilagði húsið sitt með gröfu rétt eftir hrun og fékk fjölmiðla til að trúa því að hann væri fórnarlamb. Þegar nánar var að gætt reyndist gröfukallinn ekki Hversdags-Jón í launavinnu heldur maður með slóða á eftir sér.
Hvað ætli séu margar útgáfur af Villa trymbli og ónafngreinda gröfukallinum sem mæta á Austurvöll að gera hávaða?\"