Sá vígfimi þjóðmálarýnir sem Jónas Kristjánsson er undrast stórum stórfellda rýrnu stöðugleikaframlagsins og segir að fari fram sem horfi megi líkja niðurstöðunni af öllu saman við landráð.
\"Smám saman er að koma í ljós, að stöðugleikaframlagið gefur í aðra hönd aðeins brot af áður ráðgerðum stöðugleikaskatti,\" skrifar hann á vef sinn jonas.is og bætir við: \"Hann átti að nema 857 milljörðum, en framlagið mun aðeins útvega 260-345 milljarða. Þar af meiriparturinn í eignum, en ekki í reiðufé,\" en þar vitnar hinn reyndi ritstjóri til nýlegrar úttektar Fréttablaðsins á framlaginu sem hann segir trúverðuga.
\"Mér sýnist ljóst,\" skrifar Jónas áfarm \"að spuni ríkisstjórnarinnar jafngildi landráðum. Felur í sér meira tjón en illræmd stjórn Davíðs á Seðlabankanum og er þá mikið sagt. Stafar auðvitað af, að einkavinir undir pilsfaldinum eru atkvæðamiklir í hópi hrægammasjóðanna, sem eiga föllnu bankana.\"
Jónas er yfirlýsingaglaður sem fyrr og botnar þessi skrif sín svona: \"Landráðin eru skandall aldarinnar.\"