Maður sem grunaður er um að hafa staðið að sprengjutilræðum Austin í Texas undanfarnar vikur fórst í sprengju í lögregluaðgerð við hótel í Austin í morgun.
Maðurinn, sem var í bíl þegar lögreglan nálgaðist hann, er sagður hafa sprengt sprengju í bílnum. Lögreglumaður sem nálgaðist bílinn kastaðist til við sprenginguna og annar lögreglumaður er sagður hafa skotið að bílnum um leið. Rétt áður hafði maðurinn sprengt aðra sprengju á þjóðvegi skammt frá.