Franskar herflugvélar gerðu loftárásir á borgina Raqqa í Sýrlandi í nótt, en þær eru á valdi íslamskra vígasveita. Þær eru gerðar í kjölfar heitstrenginga Frakklandsforseta um að vesturveldin muni tortíma Ríki íslams á næstunni.
Að sögn franskra hermálayfirvalda hæfðu sprengjurnar og eyðilögðu stjórnstöðvar og þjálfunarbúðir vígasveitanna að sögn herforingjaráðs franska hersins.
Franska varnarmálaráðuneytið segir 16 sprengjum hafa verið varpað, en árásirnar voru gerðar í samráði við bandarískar sveitir.
Tíu herflugvélar vörpuðu 20 sprengjum á skotmörk vígasveitanna á sunnudag, en íslamskir vígamenn fullyrða að enginn hafi farist í þeim árásum.
Francois Hollande, forseti Frakklands sagði á franska þinginu í gær að árásir Frakklands í Sýrlandi verði efldar á næstunni. Flugmóðurskipið Charles de Gaulle heldur þangað á fimmtudag með 26 herþotur innanborðs.