Sprengja vegna afskipta braga

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, beitti sér fyrir því að ungur maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn. Stundin skýrði frá þessu í dag.

Í frétt Stundarinnar segir að Bragi hafi átt ítrekuð sam­skipti við föður manns­ins, Þjóðkirkjuprest, sem er mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál.

Í umfjöllun Stund­ar­inn­ar segir að Ásmundur Einar Daða­son félags­mála­ráð­herra hafi verið upp­lýstur um málið og afskipti Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli á fundi í ráðu­neyt­inu í janúar í vetur. 

Hall­dóra Mog­en­sen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og þing­maður Pírata, hefur boðað Ásmund Einar á opinn fund í vel­ferð­ar­nefnd næst­kom­andi mánu­dag. Hún segir í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag: 

„Við lestur Stund­ar­innar fæ ég ekki séð betur en Ásmundur Einar hafi sagt ósatt í þing­sal Alþingis 26. febr­úar þegar ég spurði hann út í ásak­anir á hendur for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Þar sagði hann orð­rétt „Barna­vernd­ar­stofa eða for­stjóri hennar hafa ekki brotið af sér með neinum hætt­i\". En sam­kvæmt fréttum Stund­ar­innar hafði hann fulla vit­neskju um þetta mál og afskipti Braga Guð­brands­sonar af því.
Í stað þess að láta Braga sæta ábyrgð á gjörðum sínum er honum verð­launað með stuðn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar við fram­boð hans til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.“
 
Bragi, sem fékk í febrúar ársleyfi frá störfum sem forstjóri Barnaverndarstofu, var út­nefndur sem fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna á rík­is­stjórn­ar­fundi þann 23. febr­úar. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra segir í samtali við Kjarnann að mál Braga Guðbrandssonar, fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu, hafi ekki borið á góma á fundi ríkisstjórnarinnar þegar samþykkt var að hann yrði frambjóðandi Íslands til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, en hún ætli að ræða við jafnréttis- og félagsmálaráðherra. Hún vildi þó ekki svara því hvort þetta mál breytti einhverju um stuðninginn við Braga til Barnaréttarnefndar.