Lögreglunni barst tilkynning um öflugar sprengingar eða skothvelli á nokkrum stöðum í Breiðholti á fjórða tímanum í nótt.
Innlendir fréttamiðlar greina frá þessu.
Að sögn mbl.is var bifreið með tveimur mönnum stöðvuð skömmu síðar og eru mennirnir grunaðir um að hafa staðið á bak við sprengingarnar. „Eitthvað var um að fólk hefði samband við Neyðarlínuna vegna þessa en ekki margir,“ segir í frétt mbl.is
Á visir.is er talað um að mennirnir hafi sprengt púðurkerlingar.