Öryggisfyrirtæki hér á landi segja að segja að metaukning hafi verið í sölu á öryggiskerfum fyrir heimili á fyrstu mánuðum þessa árs.
Ástæðuna sé einkum að rekja til innbrotafaraldurs á höfuðborgarsvæðinu, þar sem tilkynnt hafa verið um hátt á annað hundrað innbrota.
Auður Lilja Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá Öryggismiðstöðinni, sagði í viðtali við Stöð 2 um helgina að fyrirtækið hefði vart undan við að setja upp öryggiskerfi á heimilum, svo mikil væri eftirspurnin.
„Eftirspurnin er að aukast og við höfum sett upp mun fleiri kerfi áheldur en að við höfum gert á sama tíma í fyrra. Ég held að þetta sé metfjöldi síðustu fimm árin,“ sagði Auður Lilja.