Sprengiefni í kvöldverðarboði

Smán nefnist leikrit sem var frumsýnt í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu 11.september síðastliðinn. Verkið er frá 2012, eftir Bandaríkjamanninn Ayad Akthar frá Pakistan sem fékk m.a. Pulizer verðlaunin fyrir leikritið.

Jónmundur Grétarsson, og Salóme R. Gunnarsdóttir sem leika aðalhlutverkin í sýningunni mæta í viðtal við Lindu á Þjóðbraut í kvöld.

Í stuttu máli er sagan svona: Framtíðin brosir við viðskiptalögfræðingnum Amir Kapoor. Hann er yfir sig ástfanginn af eiginkonu sinni, listakonunni Emily, og hefur af harðfylgni og eljusemi náð að vinna sig upp innan lögfræðifyrirtækisins. En velgengnin hefur kostað sitt og fortíðin bankar upp á þegar síst skyldi.

 Amir og Emily bjóða vinahjónum heim. Fram að þessu hefur ólíkur bakgrunnur og uppruni þessara fjögurra einstaklinga ekki virst skipta neinu máli, en þegar samræðurnar berast skyndilega inn á óvænta braut er fjandinn laus. 

Hvaða áhrif hefur uppruni, kyn og kynþáttur á það hvernig við skilgreinum okkur sjálf? er meðal áleitinna spurninga í verkinu. 

Aðrir leikarar eru Magnús Jónsson, Tinna Björt Guðjónsdóttir og Hafsteinn Vilhelmsson. Smán er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og leikhópinn Elefant og leikstýrt af Þorsteini Bachmann.