Spornað við gengissveiflum

Forsætisráðherra Bjarni Benediktsson vill forðast skammtímaaðgerðir sem eiga að hafa áhrif á styrkingu krónunnar. Bjarni nefnir að tvær hliðar séu á þessu. Annars vegar hagur neytenda af lægra verði á innfluttri vöru og á hinn bóginn er það bág staða útflutningsfyrirtækja sökum sterks gengis.

Bjarni segir að það sé ástæða til að hafa áhyggjur að þverandi styrk útflutningsgreinana til að þola þetta háa gengi. Einnig minnir Bjarni á þátt verulegra launahækkana á mjög skömmum tíma. 

Þegar rætt er um hvað stjórnvöldum ber að gera vill Bjarni að horft sé til langs tíma hverju sinni. Skammtímaráðstafnanir núna til hafa áhrif á stöðu gengisins kunna að vera eins og hverjar aðrar smáskammtalækningar sem forsætisráðherra hefur ekki mikla trú á.

rtá

Nánar www.ruv.is