Sporðar tuttugu jökla hopa

Sporðamæingar Jöklarannsóknafélags Íslands sýna að íslensku jöklarnir halda áfram að hopa. Tuttugu jöklar af þeim 25 sem voru mældir síðasta haust hafa hopað.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag en þar segir að þetta eigi við um sporða allra þriggja stóru jöklanna, Langjökuls, Hofsjökuls og Vatnajökuls. Tvær mælingar hafi þó sýnt að jöklar væru að ganga fram, annars vegar í Skeuiðararjökli og Heinebergsjökli, en Grímslandsjökull standi í stað. Ekki hafi náðst að mæla á tveimur stöðum vegna snjóalaga og fljótandi ísjaka á lóni.