„spönnum breitt pólitískt litróf“

Oddvitar flokkanna sem skipa meirihlutann í borginni, Dagur B. Eggertsson, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Líf Magneudóttir kynntu í morgun samstarfssáttmálann sem flokkarnir hafa gert með sér fyrir komandi kjörtímabil.              

Samkvæmt tilkynningu frá meirihlutanum kemur fram að umhverfismál, jafnréttismál, lýðræði, samfélag fyrir alla, þjónusta borgarinnar, húsnæðismál og borgarlína verði meginatriði hjá nýjum meirihluta. 

Farið var yfir helstu atriði samstarfssáttmála flokkanna en í upphafsorðum sáttmálans segir:


„Við sem myndum meirihluta borgarstjórnar höfum sammælst um að gera góða borg betri. Við ætlum að byggja öflugt og þétt borgarlíf fyrir okkur öll með nægu framboði af húsnæði, sjálfbærum hverfum, heilnæmu umhverfi, skilvirkum samgöngum, fjölbreyttu atvinnulífi og einfaldri, aðgengilegri og lýðræðislegri umsýslu. Við ætlum að auka lífsgæði fólks og búa til borg þar sem það er gott að vera og gera. Við sem myndum meirihluta borgarstjórnar á kjörtímabilinu spönnum breitt pólitískt litróf. Við höfum fjölbreytta sýn og ólíkar áherslur en það sem sameinar okkur eru hagsmunir og lífsgæði borgarbúa og skynsamleg uppbygging Reykjavíkur til framtíðar. Að því marki stefnum við í þessum sáttmála.“