Spítalinn minnti á stríðshrjáð sýrland

Guðný Halldórsdóttir kvikmyndaleikstjóri fór mikinn í þættinum Mannmál á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld og ræddi þar meðal annars nýuppgötvað mein sitt í ristli þar sem krabbamein var búið að koma sér fyrir um árabil áður en læknar uppgötvuðu það. Sjálf leið hún kvalir í langan tíma áður en heilbrigðislkerfið fann ráð við vanda hennar - og það var í raun ekki fyrr en að hún sjálf benti læknum á stóran bolta í kvið sínum að þeir komu henni í meðferð, skáru burt æxlið og hófu lyfjameðferð. Enn sé þó óvíst hvernig þeirri baráttu lyktar.


Guðný sagði Sigmundi Erni í þættinum að hún væri ekki í læknamistakaliðinu, en hitt væri víst að hún væri hneyksluð á því hvernig komið væri fyrir helstu sjúkrastofnun landsmanna. Maður hennar hefði fengið hjartaáfall fyrir nokkrum árum og þá hefði ástandið á spítalanum verið viðunandi, en nú mætti líkja því við stríðshrjáð Sýrland. Það væri eins og að ganga inn á blóðvöll að vera á spítalanum í nokkra daga. Samanburðurinn væri sláandi frá því maður hennar fékk áfallið og hún lagðist þar inn. Hvorki væri pláss fyrir sjúklinga né lækna; sjálf hefði hún kynnst því þegar læknir hennar reyndi að finna afdrep til að segja henni staðfestingu þess efnis að hún væri með krabbamein. Þau hefðu gengið úr einum kima í annan án þess að finna svo mikið sem lítið herbergi til að eiga þetta viðkvæma samtal.


Guðný var ekki að skafa utan af hlutunum í einstaklega hressilegu og hispurslausu viðtalinu; hægrimönnum hefði tekist ætlunarverk sitt, að eyðileggja og rústa íslensku heilbrigðiskerfi,


Klippur úr viðtalinu og þáttinn í heild sinni er hægt að horfa á hér: