Á fimmta tug hjukrunarfræðinga hefur sagt starfi sínu lausi á Landspítalanum eftir að stjórnvöld settu lög á verkfall þeirra um helgina og þá hefur þriðjungur geislafræðinga á spítalanum sagt upp störfum á síðustu dögum.
Mikil ólga er innan spítalans og þykir ljóst að hrina uppsagna heldur áfram næstu daga ef marka má umræður innan helstu starfstéttanna sem þar er að finna. Forstjórinn, Páll Matthíasson hefur ekki farið varhluta af því á fyrstu sólarhringunum eftir að heilbrigðisstéttirnar innan BHM og Félags hjúkrunarfræðinga sneru aftur til vinnu að hótanir um fjöldauppsagnir eru ekki innantómar.
Hann sagði í samtali við RÚV í gærkvöld að Landspítalinn hefði fallið niður um deild; þar væri nú aðeins sinnt bráðaþjónustu við mjög veikt fólk, en langur vehur væri frá því að hann réði við þau verkefni sem hlaðist hefðu upp innan allra deilda hans með því fjármagni sem honum væri ætlað til rekstursins. Ef ekki kæmi til aukafjárveitingar gæti spítalinn ekki gert annað en að ýta þeim vanda á undan sér.