Spítaladeilur mega ekki endurtaka sig

"Að þessum deilum loknum færi best á því allir sem að þeim koma, beggja megin samningaborðanna, einhendi sér í að finna nýjar leiðir til launaákvarðana," skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjum pistli sínum á hringbraut.is um yfirstandandi kjaradeilur sem lamað hafa Landspítalann.


Hann segir rétt sjúklinga hljóta að ganga framar samningarétti - og ekki gangi að tefla á tæpasta vað í öryggismálum alvarlega veiks fólks: "Almennt snúast vinnustöðvanir um hagsmuni sem meta má til fjár. Launakröfur og tap vegna verkfalla má setja á vogarskálar. Á sjúkrahúsum er hins vegar heilsa og líf fólks í húfi. Á hvorugt verður slegið fjárhagslegum mælikvarða. Eftir aðvörun landlæknis er í þessu ljósi siðferðilega ógerlegt að verja áframhaldandi vinnustöðvanir á Landspítalanum."


Hann vill nýjar leiðir við samningagerð sem endi ekki ósjálfrátt í verkjföllum eins og verið hefur alltof lengi: "Starfsfólkið þarf vitaskuld að geta treyst þeim til að skila ásættanlegum starfskjörum. Og almenningur þarf að losna við þann kvíðboga að þetta ástand geti endurtekið sig eftir þrjú ár."


Hann bætir loks við: "Þau lagaákvæði sem tryggja eiga öryggi sjúklinga við vinnustöðvanir geta hugsanlega dugað í nokkra sólarhringa. En reynslan sýnir að þau duga ekki vikum saman. Uppstokkun á launaákvörðunarkerfinu er því brýn nauðsyn. Kerfisbreyting mun örugglega auka launakostnað ríkisins. En það má ekki gerast aftur að landlæknir þurfi að gefa út aðvörun af því tagi sem nú hefur legið án viðbragða í fjórar vikur."