Lögreglumaðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um alvarleg brot í starfi er karlmaður á fimmtugsaldri og hefur nokkurra ára starfsreynslu á bak við sig innan löggunnar.
Einnig kemur fram að maðurinn sé í einangrun sökum rannsóknarhagsmuna.
Heimildir Hringbrautar herma að rannsóknin snúi að óeðlilegum samskiptum lögreglumannsins við brotamenn.
Ekki er talið óhugsandi að einhver tengsl séu milli þessa máls og máls sem visir.is greindi frá fyrir nokkru þegar annar maður er talinn hafa unnið störf með aðfinnsluverðum hætti en var fluttur til.