„spillingarmálin hrannast upp hvert af öðru“

Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði skrifar grein á Kjarnann þar sem hann veltir fyrir sér framtíð Vinstri grænna.

Vinstir grænir mælast með nú með 10 prósent fylgi í skoðanakönnunum og hann bendir á að einungis tvisvar hafi stjórnmálaflokkar ekki tapað fylgi eftir að hafa verið með Sjálfstæðisflokki í ríkisstjórn. Það sé því ekki ástæða fyrir flokkinn að vera bjartsýnn.

„Í ljósi for­tíðar er senni­legt að skoð­ana­kann­anir nú gefi nokkuð glögga vís­bend­ingu um fylgi VG í næstu þing­kosn­ing­um. Skemmst er einnig að minn­ast afhroðs VG í sveita­stjórn­ar­kosn­ingum 2018; í Reykja­vík fékk flokk­ur­inn þá til dæmis 2700 atkvæði í stað um 14.500 atkvæða í þing­kosn­ingum árið áður.“

Hann segir að að flokkurinn geti þó gripið til aðgerða. 

„Krefj­ast þess til dæmis að rík­is­stjórnin taki miklu fastar á spill­inga­málum – eins og Sam­herja­hneyksl­inu.“ 

Eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar hafi í upphafi verið að endurvekja traust á stjórnmálum en árangurinn sé lítill. „Spill­ing­ar­málin hrann­ast upp hvert af öðr­um.“

Þá segir hann að ráðlegt væri fyrir Vinstri græna að breikka forystu flokksins og endurnýja sig, vilji þeir ekki að illa fari.

„Umbóta­öflin á Íslandi eru í sókn. Þau myndu styrkj­ast enn frekar með end­ur­nýjun VG og mál­efna­legri og virkri fjar­lægð flokks­ins frá núver­andi varð­stöðu um óbreytt valda­kerfi í land­inu. Ella á VG – að mínu mati - ekk­ert betra skilið en að bíða afhroð í næstu þing­kosn­ing­um.“