Spekileki úr alþingi?

Endurnýjun á Alþingi verður mikil eftir þingkosningarnar á laugardaginn. Fjöldi þingmanna eða 24 af 63 hætta á þingi. Er endurnýjunin of mikil? Er reynslan að leka út úr Alþingi? Verður svonefndur spekilegi úr þinghúsinu? 

Mikið rót hefur verið á þingsætum. Í síðustu þrennum Alþingiskosningum hafi orðið miklar mannabreytringar - þriðjungur þingmanna var nýr 2007, tæplega fjörutíu prósent þingmanna í kosningunum tveimur árum seinna og sama hlutfall  í síðustu þingkosningum.

Katrín Júlíusdóttir, fráfarandi þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi ráðherra, Róbert Marshall, Bjartrar framtíðar og Helgi Hrafn Gunnarsson, Pírati hætta öll. Þau eiga mislanga þingreynslu að baki og Katrín sú eina sem hefur verið þingmaður og ráherra.

Þrímenningarnir muni á Þjóðbraut á morgun ræða um starf Alþingismannsins og hve lengi nýjir þingmenn eru að ná tökum á störfum þingsins sem er ekki líkur neinum öðrum vinnustað.