Spánn er ekki ráðgáta

Nú er úr vöndu að ráða. Verða vopnuð átök á Spáni? Ýmsir stjórnmálaskýrendur geta ekki eða vilja ekki svara því enn sem komið er.

Flestir þeirra eru uppteknir við þá iðju að rekja þræðina frá afleiðingum til réttra orsaka. Þeir vilja ekki skyggnast fram á veg af þeim sjónarhóli sem þeir standa nú á.

Hér er það verk að vinna að kanna manninn  - Katalónumanninn og Spánverjann - og leitast við að skilja og skýra eðli og skapgerð og jarðveg og sögu og þá menningu sem þeir eru vaxnir úr.

Nýjar hræringar og kvalarteygjur endurminninga um borgarastyrjöldina eru ofarlega í hugum Spánverja og Katalóna. Spánn er í dag óráðin gáta. Þar við situr. Stjórnarfar Frankó dugar ekki sem varanleg skýring á hremmingum Spánar.

Frankó er hýðingardrengur billegra söguskýringa Spánverja. Rétt eins og Stalín og Hitler eru sakahrafnar Rússa og Þjóðverja.

Þannig skjóta Spánverjar - og Katalónar - sér hjá því að ræða meinsemdir Spánar í okkar samtíma.

[email protected]