Spáir mörgum „dauðum“ atkvæðum

Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segir í samtali við Morgunblaðið í dag líklegt að mörg atkvæði „falli dauð“ í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík vegna þess hve framboðslistar eru margir. „Dauð“ atkvæði eru þau sen nýtast ekki í borgarstjórn þar sem viðkomandi framboð nær ekki manni inn og þá nýtast atkvæðin sem listinn fékk ekki neinum.

Í Reykjavík eru 16 listar í framboði og eftir fjölgun borgarfulltrúa verða borgarfulltrúar í Reykjavík 23. Ólafur segir að þessi fjölgun borgarfulltrúa hafi áhrif á fjölda dauðra atkvæða. Listi þarf 2,6 til 4,2 prósent til að ná manni inn.

„Ef það eru margir litlir flokkar, sem eru rétt undir því að ná manni inn þá gæti þetta orðið umtalsvert af dauðum atkvæðum. Í alþingiskosningum hafa venjulega innan við 5 prósent atkvæða verið dauð en í kosningunum 2013 voru dauð atkvæði 12 prósent sem var óvenjulega mikið. Í kosningunum í fyrra voru það aftur á móti innan við 2 prósent atkvæða sem voru dauð,“ er haft eftir Ólafi í blaðinu.

Ólafur telur ólíklegt að listi nái inn manni með þau 2,6 prósent atkvæða sem þarf og líklegast þurfi listi meira eða 3,5 til 4 prósent til að ná inn manni.