Spáir löngu vaxtarskeiði næstu árin

Íslendingar ganga nú í gegnum eitt lengsta hagvaxtarskeiðið á lýðveldistímanum sem að miklu leyti má þakka uppganginum í ferðaþjónustu, en hann kallar á mikinn innflutning vinnuafls á næstu árum.

Þetta segir Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands í Morgunblaðinu í dag, en hann telur ferðaþjónustuna vera slíka búbót fyrir íslenskt efnahagslíf að leita þurfi samanburðar í útfærslu landhelginnar í tveimur þrepum úr 12 í 200 sjómílur á sjöunda áratug síðustu aldar.

Ólíkt þeim tímum muni þó verðbólguþrýstingur ekki fylgja auknum umsvifum, segir dósentinn við blaðið, því stóraukinn innflutningur vinnuafls muni halda aftur af launaskriði og launahækkunum.

Ásgeir telur horfurnar svo góðar að íbúafjöldi landsins verði kominn í 400 þúsund fyrr en spáð hefur verið.