Spáir kuldakasti næstu 30 árin

Páll Bergþórsson fyrrverandi Veðurstofustjóri spáir því að eftir yfirstandandi hlýnun á norðurhveli, sem staðið hefur yfir í 30 ár, taki nú við kuldaskeið sem vari í annan aldarþriðjung.

Páll skrifar grein um þetta efni í Morgunblaðið í dag þar sem hann fjallar um vítahring íssins í Norðurhafi. Veðursagan sýni að ísinn frá Grænlandsjökli teygi reglulega úr sér uns hann mæti hlýrri hafstraumum sunnan úr höfum og byrji þá aftur að hopa. Á meðan ísinn sé hvað víðfeðmastur kólni í veðri í norðurhöfum, en þegar hann hopi hefjist hlýindaskeið.

\"Nú hefur ísinn minnkað í meira en 30 ár eftir kuldaskeið, \" skrifar Páll og bendir á að hlýindi hafi vaxið mjög á þessu hafsvæði á síðustu árum til viðbótar við hitun jarðar af völdum aukins koltvísýrings úr óhóflegri brennslu. \"Tími getur því verið kominn til náttúrrulegrar kælingar vítahringsins í áratugi, jafnvel svo að vegi á móti jarðarhlýnun,\" skrifar hinn virti vísindamaður, en bætir svo við, komandi kynslóðum til nokkurrar hughreystingar, en þó kannski fremur umhugsunar: \"Undir miðju þessarar aldar kemur svo sennilega nýtt aldarþriðjungs hlýnunarskeið, ef til vill meira en menn hafa orðið vitni að í þúsund ár.\"