Mjög djúp lægð fer norður yfir landið í nótt og er útlit fyrir að henni fylgi mikið hvasssviðri að því er fram kemur í aðvörun veðurfræðings á Veðurstofu Íslands snemma í morgun.
Verst verður veðrið austantil á landinu, en þar má búast við roki og sums staðar ofsaveðri. Bandaríska blaðið Washington Post fullyrðir á vef sínum í morgun að óveðrið á Íslandi næstu nótt megi rekja til lágþrýstingskerfis sem olli mannskæðum hvirfilbyljum í Dallas á laugardag. Það muni umbreytast í sögulegan storm yfir Íslandi.
Á vef blaðsins segir að sterkir vindar einkenni veðurlag á Íslandi á veturna, en þessi stormur geti verið meðal þeirra sterkustu hér á landi um langt skeið, en heita loftið sem honum fylgi, muni hækka hitastigið á Norðurpólnum um nokkrar gráður.
Stomviðvörun Veðurstofu Íslands er annars á þessa leið: \"Aðal vindstrengur þessarar lægðar er austan við lægðarmiðjuna og gera nýjustu spár ráð fyrir að vindstrengurinn nái inn á landið austanvert með sunnan roki og sums staðar fárviðri við austurströndina í nótt. Mikilvægt er að fylgjast með veðurspám því ekki þarf braut lægðarinnar að breytast mikið til þess að miklar breytingar verði á veðurspám. Í kvöld og nótt má einnig búast við talsverðri úrkomu suðaustanlands og á Austfjörðum. Upp úr hádegi á morgun verður lægðin komin norður fyrir land og má þá búast við suðvestan átt 15-25 m/s með skúrum eða éljum um landið sunnan- og vestanvert, en hvassast verður þá á annesjum norðantil. Annað kvöld dregur síðan ört úr vindi.\"