Gífurleg hitabylgja er nú i Evrópu og hafa hitamet verið slegin í mörgum Evrópuríkjum þessa daganna. Á morgun er spáð því að hitinn nái allt að 45 gráðum bæði á Spáni og í Frakklandi. Ástæða þessarar gífurlegu hitabylgju er mjög heitt loft sem kemur sunnan frá Afríku.
Yfirvöld um alla Evrópu hafa varað íbúa sína að halda sig inni þegar hitinn verður mestur og drekka mikinn vökva, þó ekki áfengi. Einnig hafa ríki Evrópu sett af stað varúðarráðstafanir vegna hættu á skógareldum. Árið 2003 létust 15 þúsund manns vegna hitabylgjunnar það árið.