Spá um langa lífdaga

Aldrei skortir illt umta þegar forseta Bandaríkjanna ber á góma. Einkum eru bandarískir álitsgjafar eljusamir við að kasta rýrð á verk Donald John Trump forseta.

Þeir sem hafa það lífsstarf að spá fyrir um óorðna hluti skoða nú hvað framtíð hans ber í skauti sér.

Breskir stjórnarerindrekar í Bandaríkjunum telja næsta víst að forsetinn nái endurkjöri í kosningnunum árið 2020.

Þetta segir breska dagblaðið The Telegraph www.telegraph.co.uk

Sömu erindrekar telja að það sé því óráð að Bretar sýni forsetanum frekari lítilsvirðingu en orðið er enda þurfa Bretar frekar á Bandaríkjamönnum að halda en margur Breti hyggur.

[email protected]