Norskir kjósendur ganga að kjörborðinu mánudaginn 11. september nk. Þrjár kannanir voru birtar í Noregi sl. fimmtudag og gefa þær vísbendingu um gott gengi norska Verkamannaflokksins. Kosið er um 169 þingsæti.
Líkur er því á að Jonas Gahr Störe verði næsti forsætisráðherra Noregs. Erna Solberg er nú forsætisráðherra samsteypustjórnar undir forystu hennar flokks Hægri flokksins. Nokkur popúlistabragur þykir vera á samstarflokkum Erna Solberg.
Kristilegi þjóðaflokkurinn er sem fyrr í oddaaðstöðu og getur áfram unnið með Erna Solberg eða söðlað um og unnið með Verkamannflokknum.
Norskir stjórnmálaskýrendur hvetja til varkárni í spám um úrslitin. Erna Solberg er sögð slyngur pólitíkus og því sé óvíst að Jonas Gahr Störe og Verkamannaflokkurinn taki völdin í Noregi.