Seðlabanki Íslands (SÍ) hefur lækkað stýrivexti um 2% á innan við einu ári. Sú þróun hefur verið réttlætt vegna styrkingar krónunna. Einnig koma annars vegar til traustari verðbólguvænting SÍ við sett verðbólgumarkmið SÍ og hins vegar horfur á varanlegum stöðugleika.
Hugsanlega lækkar SÍ vexti um samtals 0,25% það sem eftir lifir þessa árs en peningastefnunefnd SÍ á eftir að funda fjórum sinnum á þessu ári. Leiða má líkur að því að sú lækkun komi seinna á þessu ári en að SÍ haldi vöxtum óbreyttum við næstu vaxtaákvörðun.
Á miðvikudag verður stýrivaxtaákvörðun SÍ kynnt og spáir Hagfræðideild Landsbanka Íslands óbreyttum stýrivöxtum. Greiningardeil Arion banka spáir vaxtalækkun.
Um þetta er skrifað ítarlega í fréttabréfi Hagfræðideildar Landsbanka Íslands.
rtá