Spá lágu olíuverði næstu þrjú árin

Sérfræðingar á olíumarkaði meta það svo að verð á olíu muni áfram haldast lágt á næstu árum. Olíuverð hefur ekki verið lægra frá árinu 2009, eða í sex ár.

Ketill Sigurjónsson, lögfræðingur og sérfræðingur í orkumálum kveðst í samtali við Markaðinn í dag vera sannfærður um að verð á olíu og annarri hrávöru haldist áfram lágt: \"Til skemmri tíma litið, ef við lítum eitt ár fram í tímann, verður olíuverð alveg örugglega mjög lágt,\" segir hann þar og bendir á að spár til lengri tíma geri ráð fyrir lágu olíuverði á næstu þremur árum hið minnsta, en greiningaraðilar á borð við Goldman Sachs séu mjög svartsýnir fyrir hönd olíuiðnaðarins.

Meginskýringin á lágu olíuverði nú um stundir er rakin til efnahagsþrenginga í Kína en þar hefur mjög hægst á efnahagsvexti á síðustu misserum, en á sama tíma hefur olíuframleiðsla í Bandaríkjunum aukist til muna. Og þegar saman fer aukið framboð og minnkandi eftirspurn má ljóst vera hver niðurstaðan verður.