Spáir lækkun vaxta

Miðvikudaginn 14. júní nk. tilkynnir peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands um vaxtaákvörðun sína. Greiningardeild Arion banka spáir því að vextir verði lækkaðir um 0,25%. Meginvextir verði því 4,5%.

Líkt og oft áður telur Greiningardeildin að vaxtaákvörðunin verði tvísýn. Nú ber svo við að valið stendur ekki á milli 25 punkta lækkunar og óbreyttra vaxta. Valið stendur á milli 25 og 50 punkta lækkunar.

Að mati Greiningardeildarinnar eru litlar líkur á óbreyttum vöxtum - einkum og sér í lagi vegna verulegrar gengisstyrkingar krónunnunar á milli funda nefndarinnar. Gengið hefur styrkst um 2,3% frá síðasta fundi nefndarinnar og voru verðbólguhorfur þá samt sem áður góðar.

Greiningardeildin sér fram á að hægja taki á hækkunum húsnæðisverðs á næstunni.

Þá má nefna segir í fréttilkynningu deildarinnar að landsframleiðslutölur sem voru birtar í morgun eru í mýkri kantinum. Síðast en ekki síst voru að mati Greiningardeildarinna skýrar vísbendingar um vaxtalækkun í síðustu fundargerð peningastefnunefndarinnar.

rtá

Nánar www.arionbanki.is www.hagstofa.is