Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir „hóflegri“ verðhækkun á íslenskum hlutabréfamarkaði í ár eftir erfitt ár í fyrra. Þrátt fyrir að færa megi rök fyrir því að markaðurinn sé undirverðlagður, sé litið til verðkennitalna, þarf „ansi margt“ að falla með honum til þess að hann taki miklum hækkunum á árinu, að sögn greinenda bankans.
„Kjarasamningar [þurfa] að leysast farsællega, flugframboð að skýrast og ekki minnka, afkomubati að nást í rekstri, vænt samlegðaráhrif hjá stærstu innlendu félögunum að raungerast, innflæðishöft að hverfa og tvískráning Marels að verða að veruleika og takast vel,“ að því er segir í nýlegri afkomuspá hagfræðideildarinnar sem Markaðurinn hefur undir höndum.
Greinendur Landsbankans spá því að samanlagðar tekjur félaga á aðallista Kauphallarinnar aukist um 16 prósent í ár frá fyrra ári og að rekstrarhagnaður félaganna aukist jafnframt um 20 prósent. Gert er ráð fyrir um 3,5 prósenta innri tekjuvexti á árinu og 7 prósenta innri EBITDA-vexti.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/markadurinn/spa-hoflegri-haekkun-a-hlutabrefamarkai