Spákort næstkomandi sunnudags fyrir höfuðborgarsvæðið lítur ekki amalega út í augnablikinu en samkvæmt því má búast við 24 stiga hita og heiðskíru veðri í Reykjavík klukkan 14.
Slíkt veður væri kærkomið þar sem íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa lítið séð til sólar það sem af er sumri og meira af rigningu.
Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hitinn gæti farið upp í allt að 25 stig á einhverjum stöðum í Reykjavík en slær þó töluverða varnagla á spánni þar sem allt þurfi að ganga upp til þess að hún gangi eftir.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018180729174/spa-allt-ad-25-stiga-hita-og-sol-i-reykjavik-a-sunnudag