Spá 6,6% hækkun íbúðaverðs í ár

Sérfræðingar Arion banka spá 6,6% hækkun húsnæðisverðs í ár, 4,1% hækkun á næsta ári og 2,3% hækkun árið 2020. Útlit er fyrir að efnahagsástand verði áfram gott, kaupmáttur muni halda áfram að aukast og að fólksfjölgun verði ör.
 
Þá benda bankamennirnir á að nú um stundir sé fremur gott aðgengi að fjármagni og að vextir af íbúðalánum hafa lækkað, en þar er væntanlega verið að vísa til þess að lífeyrissjóðirnir hafa komið inn á lánamarkaðinn með nokkrum tilþrifum.
 
Skýrsluhöfundar segja húsnæðisverð hafa hækkað verulega umfram undirliggjandi þætti síðustu tvö ár. Ólíkt stöðunni fyrir rúmu ári síðan eigi þetta við um öll hverfi, ekki bara miðsvæði Reykjavíkur. Þannig hafi verðhækkanirnar smitast út í jaðrana, sem sést meðal annars í lægra miðborgarálagi.
 
Í skýrslunni kemur fram að húsnæðisverð hefur hækkað verulega árið 2017, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Mestar hafa hækkanirnar verið í úthverfum höfuðborgarsvæðisins og nágrannasveitarfélögum.
Íbúðafjöldi á landinu jókst um 1700 íbúðir á síðasta ári og aukið framboð er í farvatninu. Byggja þarf hátt í níu þúsund íbúðir á landinu öllu fram til ársloka 2020, ef markmiðið er að vinna á skortinum sem myndast hefur og til að framboð haldi í við fólksfjölgun. Samkvæmt spá bankans er ólíklegt að sá fjöldi náist.