Það var dregin upp dökk mynd af efnahag landsmanna á morgunverðarfundi Virðingar á Grand hóteli í dag sem bar nafnið Föstudagur til fjár en þar var talað jafnt um komandi óðaverðbólgu og vaxtastökk af stærri gerðinni.
Erindi þeirra Ásgeirs Jónssonar, hagfræðings og Þorsteins Víglundssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins báru nöfn sem ef til vill skelfa ein og sér: Öfundsverðar skammtímahorfur, fjallaði Ásgeir um, en Fram af hengifluginu nefndist erindi Þorsteins.
Í máli þeirra kom fram mikill ótti við afleiðingar nýgerðra og yfirstandandi kjarasamningara, en verðbólga getur að sögn þeirra farið hæglega upp í 8 til 9% á næsta ári, nema Seðlabankanum takist að halda henni niðri með því að kaupa nóg af gjaldeyri og halda genginu háu.
Þó væri augljóst að stýrivextir Seðlabankans tækju kipp á næstu mánuðum, gætu hæglega farið úr 5,5% upp í 12%.
Þorsteini sýndist augljóst að samningum á almennum markaði yrði sagt upp í febrúar á næsta ári, þeir yrðu þá lausir í maí - og þá færi höfrungahlaupið aftur af stað, líklega yrði aðeins samið til eins árs - og svo koll af kolli.
Ásgeir Jónsson sagði í erindi sínu að Íslendingum væri ekki annað fært en að vera áfram læstir inni í krónuhagkerfinu með höftum, gjaldmiðillinn myndi aldrei þola álagið af afnámi hafta, hann væri einfaldlega alltof veikur til að glíma við frjálst flæði fjármagns.
Þorsteinn kom inn á þensluna á byggingamarkaði, líklega vantaði um þrjú þúsund starfsmenn í þá grein til að anna spurn eftir starfsfólki.