Grái herinn, baráttuhópur eftirlaunafólks innan Félags eldri borgara í Reykjavík, sprengdi húsnæði sitt á fyrsta fundi sem hið nýstofnaða félag hélt um helgina. Þetta kemur fram á vefnum lifdununa.is. 350 manns mættu í 120 manna sal og var setið á borðum á sviði og staðið inni í eldhúsi en dugði ekki til.
Lífeyrismál og að fólk geti lifað mannsæmandi lífi þegar það eldist er helsta baráttumál Gráa hersins. \"Krafan er að eftirlaun fólks verði aldrei undir lágmarkslaunum í landinu, sem verða um 300.000 krónur árið 2018, samkvæmt því sem samið var um í síðustu kjarasamningum. Hópurinn vill sveigjanleg starfslok og vill fá að vinna eins lengi og hann hefur getu og löngun til. Einn fundarmanna greindi frá því að eftir að hann missti vinnuna rúmlega sextugur, hafi hann sótt um 100 störf og komist í 2-3 viðtöl.\" Skýringin hafi verið fordómar gagnvart kennitölu.
Í stefnuyfirlýsingu Gráa hersins segir.
\"
Eldra fólk á að sjálfsögðu að gera þá kröfu til samfélagsins að því sé sýnd virðing. Að líta á aldraða sem afgangsstærð, sem sé baggi á þjóðfélaginu, er ósanngjarnt og ólíðandi. Eftirlaunafólk er ekki „ölmusufólk“ eða „bótaþegar. Þeir sem greitt hafa reglulega í Lífeyrissjóði hafa unnið fyrir lífeyrinum og eiga þessa fjármuni inni í sjóðum, enda hafa þeir byggt þá upp.\"