Sótt verður að gunnari braga og birgi

\"Þessi átök um að breyta utanríkisstefnunni vegna makrílsölu til Rússlands eru eitthvert sérstæðasta mál sem upp hefur komið í pólitík um langan tíma,\" segir Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á Hringbraut þar sem hann fjallar um Rússadeiluna.

Hann segir augljóst að utanríkisráðherra hafi undirtökin í þeirri glímu sem stigin hafi verið síðustu daga, en úrslit hennar séu þó hvergi ráðin, slíkir hagsmunir takist hér á, ekki síst pólitískir: \"Ofsafengin árás Morgunblaðsins á utanríkisráðherra og embættismenn utanríkisráðuneytisins og harkaleg gagnrýni Kaupfélags Skagfirðinga, sem jafnframt annast ræðismennsku fyrir Rússland, setti málið óneitanlega í pólitískt samhengi.  Kaupfélagið er eins og kunnugt er einn helsti áhrifaaðilinn í útgáfufélagi Morgunblaðsins,\" skrifar Þorsteinn.

Hann segir það afrek utanríkisráðherra út af fyrir sig að hafa staðið af sér atlöguna, ekki síst eftir að bæði formaður Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins kiknuðu í hnjánum: \"Það þarf býsna mikið til að standa slíka atlögu af sér. Einhugur utanríkisnefndar undir forystu Birgis Ármannssonar hefur ugglaust ráðið mestu um að utanríkisráðherra hefur ekki verið beygður í þessum átökum,\" skrifar Þorsteinn.

Hann segir að glímunni sé ekki lokið. Makríllinn liggi hér ekki einn undir steini, enda ráði útgerðin vel við áfallið. Sterk öfl innan beggja stjórnarflokkanna, sem vilja hætta vestrænu samstarfi og koma Íslandi þess í stað í hóp nýmarkaðsríkja með Rússlandi og Kína, vilji nú óspart nýta sér moldviðrið út af makrílhagsmununum til að breyta um kúrs í utanríkismálum. Og taktíkin verði þess: \"Í stað leiftursóknar er líklegt að reynt verði að ná markmiðinu með minni skrefum eins og fram kom í viðtali forseta Íslands við sendiherra Rússlands í vikunni,\" skrifar Þorsteinn og minnir á að sá fundur muni hafa verið í umboði forsætisráðherra.

Líklega verði sótt að þeim sem málið hefur helst brotnað, einkum utanríkisráðherra og formanni utanríkismálanefndar. Þeir þurfi báðir að gæta sín; utanríkisráðherra þurfi \"vafalaust að huga að fótfestu sinni í kjördæminu þar sem Kaupfélag Skagfirðinga er allsráðandi í hans flokki. Formaður utanríkisnefndar gæti líka þurft að hafa fyrir því að halda stöðu sinni.\"