Sósíalisti ritstýrir ríkisútvarpinu

Sósíalistinn Gunnar Smári Egilsson gerði alvarlega athugasemd við það í gær að Einar Þorsteinsson fréttamaður hefði verið látinn taka viðtal við Sigrírði Á. Andersen dómsmálaráðherra og Loga Einarsson, formann Samfylkingar, í Kastljósi í gærkvöldi.

Umræðuefnið var breyting á útlendingalögum.

Gagnrýni sina birti Gunnar Smári í opnum hópi á facebook, sem heitir Fjölmiðlanördar. Í honum eru rúmlega sjö þúsund áhugasamir um fjölmiðla.

Ástæða gagnrýninnar?Jú, að Einar Þorsteinsson hefði einu sinni verið formaður Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi.

Gunnar Smári taldi ótækt að fyrrverandi formaður ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi væri látinn taka viðtalið.

Hringbraut veit allmörg dæmi þess að Ríkisútvarpið hafi verið talið vinstri sinnað – hinn seinni árin einkum frá fyrrum forsætisráðherra og nú ritstjóra Morgunblaðsins, en ásakanir um hægri slagsíðu eru nýlunda upp á síðkastið.

Út frá ásökunum sósíalistaforingjans spruttu eðlilega miklar umræður – sem lesendur geta kynnt sér enda er vettvangurinn opinn – og lagði hver sitt í púkk um spillingu og heilindi, hægri og vinstri óáran.

Loks kom þar að Einar Þorsteinsson fréttamaður svaraði sjálfur af hófstillingu:

„Sæll Gunnar Smári

Ég er að leysa Baldvin Þór Bergsson af í Kastljósinu í tvær vikur því hann varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast stúlku á dögunum. Ég hef reyndar stýrt Kastljósinu mörgum sinnum.

Það er rétt að ég var formaður Týs í eitt ár minnir mig eftir menntaskóla. Fyrir nærri 20 árum.

Það var skemmtilegt að kynnast starfi stjórnmálaflokks á þann hátt og ég sé ekki eftir því.

Ég sagði mig hinsvegar úr flokknum þegar ég fékk áhuga á fréttum og fór að vinna á fréttastofu Rúv. Ég hef núna starfað á fréttastofunni í 12 ár.

Varðandi þessa þætti og önnur störf mín á fréttastofunni sem þú deilir hér í athugasemdum þá er það nú svo einfalt að hver og einn getur lagt mat á mín störf. Þau eru fyrir allra augum. Ég reyni einfaldlega að gera mitt besta hverju sinni.“

Eftir þessi viðbrögð sljákkaði heldur í hinum skoðanaríku, nema Gunnari Smára, sem svaraði eins og ritstjóri:

„Ég er sem sé til í málamiðlun; að þú fáir að fjalla um pólitík utan kosningabaráttu.“