Sósíalistar styðja Evrópusambandsaðild

Yfirgnæfandi meirihluti meðlima í hópnum Sósíalistaflokkur Íslands vill að Ísland kanni aðild að Evrópusambandinu. Í óvísindalegri könnun sem Þórður nokkur setti af stað í hópnum á Facebook kemur í ljós að 320 félagar segja „já“, 115 segja „nei“ og 9 segja „kannski“. Hópurinn telur um 10.300 manns.

Háværar umræður hafa skapast í umræðum undir könnuninni. Andri nokkur bendir á að það sé ekki stefna flokksins að ganga í ESB og vísar hann í Utanríkisstefnu flokksins.

„Hvaða helvítis Evrópuáróður er alltaf í gangi hérna, það eru til flokkar fyrir ykkur,“ segir Maggi nokkur.

Þórður, sem setti könnunina af stað, segir þetta snúast um velsæld almennings. „Í mínum huga er óraunhæft að berjast fyrir bættum hag og velferð almennings án þess að skoða þann kost að vera í bandalagi með þeim þjóðum sem hafa náð hvað lengst í þessum efnum. Við erum örþjóð sem komumst skammt án mikillar samvinnu og bandalags. Að vera hlynntur Evrópusambandsaðild þýðir ekki blessun yfir einkavæðingu, græðgi eða spillingu. Hún snýst um að aðhyllast eðlilegt vaxtaumhverfi, betra aðgengi að tollfrjálsum varningi, raunverulegan gjaldmiðil og meiri samkeppni,“ segir hann.

Katrín Baldursdóttir, sem hefur verið áberandi meðal sósíalista segir svo: „Það er skýrt í utanríkisstefnu flokksins að ef einhvern tíma verður einhver alvöru pæling í þjóðfélaginu að kanna aðild að ESB þá verður það þjóðarinnar að kjósa um það. Mín skoðun er hins vegar alveg skýr. ESB er rekið á grundvelli kapítalisma og nýfrjálshyggju sem stríðir gegn öllum mínum hugmyndum sem sósíalista.“