Sósíalistar samþykkja stefnu: jöfnuður, réttlæti og lýðræði

Á Sósíalistaþingi í Bíó Paradís í dag voru samþykktar stefnur Sósíalistaflokksins í mennta-, velferðar og vinnumarkaðsmálum. Í fréttatilkynningu segir:

 

Stéttlausan og gjaldfrjálsan skóla

Menntastefna Sósíalistaflokksins sem lögð var fram á þinginu 19. maí 2019 fangar vel skólann sem samfélagslegt verkefni með áherslu á að skólinn á öllum skólastigum sé gjaldfrjáls að öllu leyti. Þá sé markmiðið að skólinn sé stéttlaus, lýðræðisvitund efld og komið á algjöru jafnræði til náms. Sjá nánar hér: 

 

Réttlátari skipting gæða

Stefnan í velferðarmálum leggur áherslu á útrýmingu fátæktar og réttlátri skiptingu gæða. Að velferðarkerfið mótist að þörfum notenda með áherslu á efnahagslegan jöfnuð.  Þá sé sérstaklega hugað að réttindum barna í stefnunni.   Einnig er hugað að réttindum innflytjenda og flóttafólks auk þess sem stefnt er að afglæpavæðingu fíknisjúkdóma. Stefnan tekur einnig undir sjónarmið ÖBÍ um afnám skerðinga og að búseta hvort heldur er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni mismuni ekki fólki þegar kemur að þjónustu.  Sjá nánar hér.

Jöfnuður og lýðræði á vinnustöðu

Stefna Sósíalista í vinnumarkaðsmálum leggur áherslu á manngildi, reisn og öryggi með sérstakri áherslu á launajöfnuð og upplýsingaflæði.  Þá er hópum sem búa við valdaleysi og ósýnileika sérstaklega gefinn gaumur og ítrekað að tryggja þurfi aðgerðaráætlun og viðurlög við því sem miður fer.  Þá sé vinnuvikan stytt og atvinnulífið gert fjölskylduvænna auk þess sem lýðræði á vinnustöðum og innan verkalýðsfélaga sé eflt. Sjá nánar hér: