Sósíalistaflokkur Íslands ákvað á félagsfundi sínum í Rúgbrauðsgerðinn um helgina að stefna að framboði í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í vor.
Í tilkynningu frá sósíalistum segir að framkvæmdastjórn flokksins verði falið að undirbúa framboðið en flokkurinn vilji stuðla að kröftugri umræðu um sveitarstjórnarmál meðal flokksmanna. Einnig verði kannaðir möguleikar á framboðum í öðrum sveitarfélögum.
Það er mat félagsfundarins að brýnt sé að fram komi sósíalískt framboð á vettvangi borgarmála sem heldur á lofti brýnni hagsmunabaráttu þeirra sem hafa orðið undir vegna samfélagslegs óréttlætis.
Segir enn fremur í tilkynningunni að framboð til borgarstjórnar sé eðlilegt framhald af kröfu um endurreisn verkalýðshreyfingarinnar: \"Reykjavíkurborg rekur blóðuga láglaunastefnu gegn launafólki sínu, ber mikla sök á húsnæðiskreppunni sem grefur undan lífskjörum launafólks og hefur ýtt undir uppbyggingu húsnæðisbrasks, leigufyrirtækja og völd verktaka sem hafa stórgrætt á húsnæðisvanda hinna verst settu,“ segir þar.